fbpx
Mánudagur 21.október 2024
Fókus

Sjáðu atriði úr Kötlu, nýju íslensku þáttaröðinni á Netflix

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 20. maí 2021 07:00

Út Kötlu. Mynd: Lilja Jónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Netflix birtir í dag stiklu úr Kötlu, fyrstu íslensku þáttaröðinni, sem framleidd er fyrir streymisveituna. Þessir tilfinningaþrungnu og dularfullu vísindaskáldsöguþættir eru úr smiðju leikstjórans Baltasars Kormáks og verða teknir til sýninga um allan heim þann 17. júní. Þættirnir verða alls átta. Atriði úr þáttunum má sjá í spilaranum undir fréttinni.

UM KÖTLU

Þegar Katla hefur gosið samfellt í eitt ár er Gríma ennþá að leita að systur sinni sem hvarf daginn sem eldfjallið hóf að gjósa. Þegar von hennar um að finna lík systur sinnar fer dvínandi fara íbúar á svæðinu að fá heimsóknir frá óvæntum gestum. Kannski leynist eitthvað undir jöklinum sem enginn gat séð fyrir.

Með hlutverk fara Guðrún Ýr Eyfjörð, Íris Tanja Flygenring, Ingvar Sigurðsson, Þorsteinn Bachmann, Sólveig Arnarsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Baltasar Breki, Björn Thors, Haraldur Ari Stefánsson, Birgitta Birgisdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Aldís Amah Hamilton, Hlynur Atli Harðarson og Svíarnir Aliette Opheim and Valter Skarsgård.

Út Kötlu. Mynd: Lilja Jónsdóttir.

 

LEIKSTJÓRI: Baltasar Kormákur, Börkur Sigthorsson og Thora Hilmarsdóttir.

 HANDRITSHÖFUNDAR: Baltasar Kormákur, Sigurjón Kjartansson, Davíð Már Stefánsson og Lilja Sigurðardóttir

 FRAMLEIÐSLUFYRIRTÆKI: RVK Studios

 ÞÁTTAFJÖLDI: 8

Um RVK Studios

RVK Studios er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og var stofnað af verðlaunaleikstjóranum og handritshöfundnum Baltasar Kormáki. Á síðasta áratug vakti fyrirtækið athygli fyrir Eiðinn, Djúpið, Mýrina og Fúsa. Fyrirtækið var líka meðframleiðandi að mynd Baltasars Everest og þáttunum Ófærð sem hafa verið sýndir víða um heim og hlotið góða dóma hjá bæði áhorfendum og gagnrýnendum.

Um Netflix

Netflix er leiðandi streymisveita sem hefur það að markmiði að skemmta áhorfendum en yfir 208 millj. áskrifendur í yfir 190 löndum eru að veitunni. Þeir hafa í gegnum Netflix aðgang að sjónvarpsþáttum, heimildarmyndum og kvikmyndum af ýmsum toga. Áskrifendur geta horft á eins mikið og þeir vilja, hvar sem er og hvenær sem er svo lengi sem þeir eru í netsambandi. Þeir geta spilað, pásað og svo haldið áfram að horfa aftur án allra auglýsinga eða skuldbindinga.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Lítt þekkt ættartengsl: Systurnar gera það gott úti í heimi

Lítt þekkt ættartengsl: Systurnar gera það gott úti í heimi
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kynntist unnustanum á B5 – „Hann spurði hvað ég héti og sprakk úr hlátri þegar hann heyrði svarið“

Kynntist unnustanum á B5 – „Hann spurði hvað ég héti og sprakk úr hlátri þegar hann heyrði svarið“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Brynhildur er komin aftur til Íslands – „Ég er komin til að vera“

Brynhildur er komin aftur til Íslands – „Ég er komin til að vera“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Al Pacino segir typpameiðsli frá æsku enn ásækja hann

Al Pacino segir typpameiðsli frá æsku enn ásækja hann
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fylgdarkona segir sífellt fleiri eiginkonur leita til hennar

Fylgdarkona segir sífellt fleiri eiginkonur leita til hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Elísa Gróa var að koma upp úr dimmum dal þegar hún gerði uppgötvun sem kom mörgum á óvart – „Þannig ég hélt áfram“

Elísa Gróa var að koma upp úr dimmum dal þegar hún gerði uppgötvun sem kom mörgum á óvart – „Þannig ég hélt áfram“