Söngkonan glæsilega Björk Guðmundsdóttir og kokkurinn Alexander Jallow eru að stinga saman nefjum samkvæmt heimildum DV. Hafa þau sést saman út að borða víða í borginni og í ökuferð á Land Rover, Bjarkar.
Í dag nutu þau veðurblíðunnar hönd í hönd í vesturbænum og settust í drykk með vinum á Kaffi Vest.
Alex eins og hann er kallaður er frá er frá Gambíu og stofnaði veitingastaðinn Ogolúgó á Laugavegi í september 2020 en staðurinn vakti mikla lukku. Stóð Alex meðal annars fyrir fjáröflunarkvöldverði til styrktar hjálparstafi Kirkjunnar. Ogolúgó sérhæfir sig í afrískum réttum en lokaði í mars síðastliðin en vonir standa til að hann opni á ný eftir að faraldri léttir. Alexander hefur búið á Íslandi lengi og á meðal annars 18 ára son sem spilar fótbolta með HK og þykir mjög efnilegur.
Björk hefur dvalið mikið á Íslandi síðustu ár en sonur hennar Sindri Eldon eignaðist sitt fyrsta barn fyrir tveimur árum og hefur Björk blómstrað í ömmuhlutverkinu. Sést hún gjarnan með sonarson sinn, Asa Quartz, í göngutúr um vesturbæinn.
Þegar haft var samband við Alex vildi hann ekki tjá sig um hvort hann ætti í ástarsambandi við söngkonuna. „No comment.“