Vinirnir sex snúa nefnilega aftur á skjáinn í sérstökum þætti en 15 ár eru síðan þáttaröðin rann skeið sitt á enda.
Flestir þekkja Perry eflaust sem hinn fyndna og hálfmisheppnaða Chandler í þáttunum. Kannski má segja að myndin sem hann birti hafi verið hálfmisheppnuð því hann eyddi henni fljótlega af Instagram en á þeim tíma sem hún var þar inni náðu 27.000 manns að setja „læk“ við hana.
Margir hafa því velt fyrir sér hvort hann hafi hlaupið á sig með myndinni og eitthvað sé á henni sem umheimurinn má ekki sjá.
Á opinberum Instagramaðgangi Friends er búið að birta mynd frá upptökuverinu til að staðfesta að endurfundir Vinanna eru hafnir.
https://www.instagram.com/p/CNgYJgoHWZm/
https://www.instagram.com/p/CNgYJgoHWZm/
https://www.instagram.com/p/CNgYJgoHWZm/?utm_source=ig_web_copy_link
https://www.instagram.com/p/CNgYJgoHWZm/?utm_source=ig_web_copy_link