Klara Sif Magnúsdóttir er gestur Eddu Falak og Fjólu Sigurðardóttir í nýjasta þætti hlaðvarpsins Eigin konur. Klara er einnig vinsæl á samfélagsmiðlinum TikTok og er hún með tæplega 7800 fylgjendur þar.
Í þættinum ræðir hún hvernig það kom til að hún byrjaði að selja nektarmyndir á vefsíðunni OnlyFans. Henni hafði aldrei dottið í hug að hún myndi græða svona mikinn pening á síðunni en frá því í ágúst 2020 hefur hún grætt um 15 milljónir króna.
@dailylifeofklara♬ original sound – Trinity Saraih💋
Á OnlyFans getur þú keypt aðgang að síðu Klöru á 20 Bandaríkjadali eða um 2.700 krónur. Klara getur einnig selt notendum sérstakar myndir sem þeir biðja en þeir þurfa að greiða aukalega fyrir það.
Hún segist hafa rætt málið við móður sína og kærasta áður en hún stofnaði aðganginn og voru þau bæði stuðningsrík. Hún lét kærastann vita að þetta væri bara „bissness“ og að hann þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af því að hún myndi byrja að bera tilfinningar til manna sem hún kynnist þar.
Þáttinn má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.