Sumarbústaðurinn var skráður á Laugar ehf. þegar hann var byggður. Samkvæmt iðnaðarmanni sem DV ræddi við á sínum tíma, var kostnaðurinn við byggingu bústaðarins líklega á milli 100 og 200 milljónir króna. Samkvæmt fréttinni frá 2009 er lóðin sem bústaðurinn stendur á 6 þúsund fermetrar að stærð. Bústaðurinn er á tveimur hæðum, kjallarinn er rúmlega 73 fermetrar, en hæðin fyrir ofan er tæpir 89 fermetrar. Samkvæmt heimildum DV var keypt grafa, sérstaklega fyrir byggingu bústaðarins. Þá var einnig prammi á svæðinu sem var notaður til að ferja byggingarefni yfir vatnið.
Samkvæmt heimildarmanni DV er orðrómur um að það hafi þurft þyrlu til að koma með gluggana að svæðinu þar sem erfitt er að komast að húsinu, sérstaklega með svo mikið og stórt gler. Nágranni Björns, Ágúst Guðmundsson, Bakkavararbróðir, flaug steypu í sinn bústað þegar hann var byggður í sömu götu, með þyrlu og vakti það misjöfn viðbrögð.
Lítil bátur er á lóðinni sem fjölskyldan og vinir hennar geta notað til að fara út á Þingvallavatn. Bústaðurinn er byggður afar nálægt bakka vatnsins og því þarf ekki að fara langt til að fara í bátsferð. Þá eru líka tveir kajakar á lóðinni sem einnig er hægt að nota til að ferðast um á vatninu fallega. Vatnið er afar vinsælt til veiða en það er ákaflega djúpt og kallt, og því mikilvægt að fara varlega en fjöldi fólks hefur drukknað í vatninu.
Bústaður hjónanna er einn af rúmlega 70 einkabústöðum í Þjóðgarðinum en eftir árið 2010 hefur bygging og eða stækkun einkabústaða ekki verið heimiluð. Það er stefna Þjóðgarðsins að losa burt einkabústaða á svæðinu.