Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir selur einbýlishús sitt við Grettisgötu 40 í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er auglýst til sölu á fasteignavef Vísis.
Um er að ræða rúmlega 73 fermetra tvílyft timburhús með þremur herbergjum. Húsið stendur á eignarlóð og eru tvö bílastæði á lóðinni. Húsið var byggt árið 1903.
Það eru settar 52,9 milljónir á húsið. Sjáðu myndirnar hér að neðan.