Íslandsvinurinn og Óskarsverðlaunahafinn Russell Crowe er mikill stuðningsmaður um Eurovision-keppnina og hefur lagt blessun sína á lag Daða Freys og Gagnamagnsins. Eins og mörgum er kunnugt ber lagið heitið Thinking About Things og munu þeir Daði og félagar taka þátt í úrslitakvöldi Söngvakeppninnar þann 29. febrúar næstkomandi en alls verða fimm lög flutt í Laugardalshöllinni.
Crowe er maður fárra orða en hann deilir lagi Daða með skýrum skilaboðum og má sjá tístið hans hér að neðan.
Song.
— Russell Crowe (@russellcrowe) February 19, 2020
Daði Freyr trúir vart eigin augum og deilir sínum viðbrögðum við tísti stórleikarans.
Var Russell Crowe að deila myndbandinu? https://t.co/QJ9NVMtpaE
— Daði úr Söngvakeppninni 🥑 (@dadimakesmusic) February 19, 2020
„Er hægt að fá mikið betra shout out?“ skrifar einn við færslu Daða.
Guðný Rós Þórhallsdóttir, leikstjóri tónlistarmyndbandsins, var hæstánægð með deilingu leikarans.
Ókei ég get dáið hamingjusöm. Russell Crowe horfði á myndband sem ég gerði. 😐 https://t.co/3GLGj96rsX
— Guðný Rós Þórhallsdóttir (@gudnyros93) February 19, 2020