Á dögunum opinberaði tónlistarmaðurinn ástsæli, Páll Óskar Hjálmtýsson að hann hefði verið nafnlaus viðmælandi Pressunnar árið 1989, í viðtali er varðaði kvikmyndaklúbb sem sérhæfði sig í splatter-myndaáhorfi. Þetta kom fram í hlaðvarpi Engra stjarna, sem er á vegum kvikmyndafræðideildar Háskóla íslands.
Páll var ásamt Ísaki Jónssyni, tæknimanni, gestur í hlaðvarpinu sem er í umsjón Björns Þórs Vilhjálmssonar, dósents og greinarformanns kvikmyndafræðinnar.
Allir þrír viðurkenndu að hafa verið meðlimir í Splatter-myndaklúbbnum Mömmu, en líkt og nafnið gefur til kynna þá horfðu þeir saman á splatter-myndir. Í ljósi þess var rifjuð upp blaðagrein sem birtist í Pressunni fimmtudaginn 9. febrúar 1989, þar sem rætt var við ónafngreindan meðlim klúbbsins, sem reyndist vera Páll Óskar.
Ástæðan fyrir því að Páll kom ekki fram undir nafni í viðtalinu var vegna þess þegar að viðtalið var tekið var svokallaður bannlisti við lýði, sem var á vegum Kvikmyndaeftirlits Ríkisins. Því voru ákveðnar „ofbeldismyndir“ hreinlega ólöglegar, sem voru einmitt myndir sem að félagarnir í Mömmu höfðu áhuga á, og redduðu sér með brögðum. Svo virðist því vera að einhverjar athafnir klúbbsins hafi verið.
Í viðtalinu við Pressuna var haft eftir Páli Óskari:
„Við hittumst einu sinni í viku til að fullnægja drápsfýsn okkar sem og öðrum afbrigðilegum hvötum. Við horfum á hrylling sem er ekki klipptur af Kvikmyndaeftirlitinu, enda færu margir gámar af skærum í það. Að glápinu loknu er sest niður og hlegið. Því næst sitjum við dágóða stund og ræðum um kvikmyndir almennt því við erum engir pervertar. Við vitum alveg hvað góð bíómynd er!“
Þegar þetta var lesið upp fyrir Pál í hlaðvarpsþættinum skellihló hann og hélt því reyndar fram að Kristján Eldjárn, blaðamaðurinn sem skrifaði greinina, hefði búið einhverjar af þessum setningum til sjálfur.
„Ég skal alveg segja ykkur hver sat undir svörum í þessu viðtali. Það var ég. Og ég skal einnig fúslega viðurkenna að það var Kristján Eldjárn sjálfur sem skrifaði megnið af viðtalinu. Það var hann sem kemur með að það þyrfti gáma af skærum“ segir Páll og springur úr hlátri.
„Ég man bara þegar þetta viðtal, þessi heilsíða, birtist og hvað mér fannst þetta djúsí og gaman að lesa þetta. Það sem var best að loksins kom eitthvað andsvar við öllum þessum púrítanisma. Þetta viðtal var ákveðið fokkjú-merki og það er mjög auðséð. Fokkjú, við reddum okkur þessum myndum alveg sjálfir, burtséð frá öllu. Við reddum okkur óklipptu útgáfunum bara sjálfir. Ekkert mál. Þannig það var bara gott að þetta birtist og gott á þetta lið.“
Í hlaðvarpinu ræddu þeir Páll, Björn og Ísak frekar um Splatter-myndaklúbbinn Mömmu, bannlistann og ritskoðunina í kringum hann, hryllingsmyndir og kvikmyndagerð yfir höfuð. Hlusta má á þáttinn á Spotify, Hringrás, og í spilaranum sem er hér fyrir neðan.