Nýgift, uppfull af eftirvæntingu fyrir framtíðinni, héldu McAreavey hjónin til Máritíus í brúðkaupsferð. Það sem byrjaði sem draumur endaði í martröð sem er enn í gangi
Þann 30. desember árið 2010 giftust þau Michaela McAreavey og John McAreavey á Írlandi. Þau höfðu verið saman frá því árið 2005 en þau kynntust þegar þau voru bæði í háskólanámi. Eftir brúðkaupið var komið að brúðkaupsferðinni sem hófst með viku í Dúbaí. Þar nutu hjónakornin lífsins en eftir það var förinni heitið til eyjunnar Máritíus í Afríku. Þau hefðu betur haldið sig í Dúbaí.
Það var Michaela sem hafði valið að fara til Máritíus. Eftir að þau John höfðu grandskoðað öll hótelin ákváðu þau að velja Legendshótelið sem var 5 stjörnu hótel með góðar umsagnir. Þegar Michaela og John mættu í móttöku hótelsins, þann 8. janúar árið 2011, spurðu þau hvort það væri hægt að uppfæra bókunina þeirra. Það var hægt, nýgiftu hjónin fengu því lúxusherbergi.
Tveimur dögum eftir að hjónin höfðu mætt á hótelið, þann 10. janúar, fóru hjónin saman niður í morgunmat. Eftir morgunmatinn fór John í golf á meðan Michaela skellti sér í sólbað. Þegar John kom til baka eftir golfið fengu þau sér hádegismat saman. Eftir hádegismatinn ákvað Michaela að ná í súkkulaði sem þau voru með í herberginu. John ákvað að bíða og taka nokkrar myndir á meðan Michaela fór upp á herbergi. John gerði sér ekki grein fyrir því þarna en hann átti aldrei eftir að sjá eiginkonu sína á lífi aftur.
Fannst látin í baðkarinu
Þegar John var búinn að bíða eftir því að Michaela kæmi aftur í þó nokkurn tíma ákvað hann að fara upp og kíkja á hana. Þegar John gekk inn á hótelherbergið sá hann eiginkonu sína í baðkarinu. Hún var köld og varirnar voru bláar. John reyndi hvað hann gat til að vekja hana. Hann reyndi að beita skyndihjálp en allt kom fyrir ekki. Michaela var dáin.
Hringt var í lögregluna á svæðinu sem kom að vörmu spori. Lögreglunni hafði verið sagt að einhver hefði drukknað á hótelinu. Þegar lögregluþjónarnir komu inn í herbergið grunaði þá strax að morð hefði átt sér stað. Herbergið var í óreiðu og Michaela var marin á hálsinum. Við krufningu kom í ljós að hún hafði dáið vegna súrefnisskorts. Plastpoki hafði verið settur yfir höfuðið á henni og hún síðan kyrkt.
Þrír menn handteknir
Morðið var tekið mjög alvarlega og mikið áfall fyrir Máritíus þar sem landið reiðir sig sérstaklega mikið á tekjur frá ferðamönnum. Það var þess vegna ákaflega mikilvægt að málið væri leyst hratt og örugglega. Það virtist ætla að ganga þegar þrír menn voru handteknir vegna morðsins, einungis degi eftir að það var framið.
Mennirnir þrír, Avinash Treebhoowoon, Sandip Moneea og Raj Theekoy, sem voru handteknir, voru allir starfsmenn á hótelinu. Raj var látinn laus fljótlega eftir handtökuna en hann vissi þó sitthvað um málið. Eftir að Raj sagði frá því sem hann vissi var annar starfsmaður hótelsins handtekinn, öryggisvörðurinn Dassen Narayanen. Hann var sakaður um að hafa gefið þeim Sandip og Avinash lykil til að komast inn í herbergi McAreaveyhjónanna.
Dassen játaði sína sök í málinu en þeir Avinash og Sandip héldu því fram að þeir væru saklausir. Málið fór því fyrir dóm.
Fyrir dómstólnum sagði saksóknarinn í málinu að Michaela hefði farið upp á herbergið sitt og staðið þá Avinash og Sandip að þjófnaði. Þá sagði saksóknarinn að þeir Avinash og Sandip hefðu ákveðið að kyrkja Michaelu svo hún gæti ekki borið kennsl á þá. Avinash og Sandip höfðu báðir aðgang að herbergi hjónanna þar sem Dassen hafði látið þá fá lykilinn.
Þá sagði saksóknarinn að Raj hefði verið fyrir utan herbergið og heyrt í „konu sem kvaldist“. Eftir það sá hann Avinash og Sandip fara út úr herberginu. Hann spurði þá hvað hefði gengið á. „Ekkert gerðist, ekki segja neitt. Ef þú segir eitthvað þá gerum við þig meðsekan,“ sögðu Avinash og Sandip við Raj.
Fyrir dómi var sagt að Avinash hefði játað sök sína í morðinu. Hann játaði sökina í yfirheyrslum lögreglu. Avinash sagði að Michaela hefði gengið inn á þjófana og því hefðu þeir myrt hana. Þeir hefðu síðan sett hana í baðkarið til að þrífa ummerki sín af líkinu.
Saklausir blórabögglar
Lögmenn sakborninganna héldu því fram að þeir Avinash og Sandip væru saklausir blórabögglar. Lögmennirnir vildu meina að rannsókn málsins hefði verið léleg, ekki allt á vettvangi morðsins hefði verið skoðað gaumgæfilega. Til að mynda var herberginu ekki lokað af almennilega, en auk þess voru aðrir gestir hótelsins ekki yfirheyrðir. Þá fannst ekkert erfðaefni á vettvangi morðsins. Avinash og Sandip voru sagðir hafa tekið peninga úr veski, en þrátt fyrir það voru engin sýni tekin af veskinu.
Eftir þetta voru sýni af líki Michaelu send til Bretlands til rannsóknar. Hvorki erfðaefni úr Avinash né Sandip fannst við þá rannsókn. Það eina sem fannst í rannsókninni var mögulegt erfðaefni Sandip á lyklinum sem notaður var til að opna herbergið og á skúffu í herberginu. Sérfræðingurinn sem fór fyrir rannsókninni sagði þó að lögreglan hefði ekki staðið sig nógu vel í að loka vettvang glæpsins af og því væri ekki hægt að fullyrða hvort Sandip hefði verið viðriðinn morðið.
Ældi blóði
Málið var að leysast upp í höndum saksóknarans. Dassen, sá sem sagðist hafa látið Sandip hafa lykilinn, dró játningu sína til baka. Hann vildi meina að lögreglan hefði neytt sig til að segja það sem hann sagði með því að miða á hann byssu. Lögreglan neitaði því.
Þá dró Avinash sína játningu líka til baka. Hann vildi meina að hann hefði einnig verið neyddur til að skrifa undir játninguna eftir lögregluofbeldi. Hann sagðist hafa verið pyndaður, meðal annars með vatnspyndingu sem endaði með því að hann ældi blóði.
Lögmenn sakborninganna lögðu fram enn fleiri sönnunargögn sem gáfu í skyn að hvorki Avinash né Sandip hefðu framið morðið. Til að mynda var Sandip með fjarvistarsönnun eftir að starfsmaður hótelsins sagði hann hafa verið með sér þegar morðið var framið.
Málið ennþá óleyst
Í fyrstu virtist sem málinu yrði lokað á tveimur vikum, en það endaði á að dragast í tæpa tvo mánuði. Að lokum ákvað kviðdómurinn að þeir Avinash og Sandip væru saklausir. Rannsóknin á morðinu var því opnuð á ný en ekkert kom út úr því. Málið var opnað á ný árið 2017 en aftur fannst ekkert merkilegt. Í ár var rannsókninni lokað endanlega og málið er því enn þann dag í dag óleyst.
Fjölskyldur hjónanna kærðu Legendshótelið eftir málið og vildu fá 1,6 milljónir evra, um 245 milljónir íslenskra króna, í skaðabætur. Málið var leyst utan dóms en ekki er vitað hversu mikið hótelið greiddi fjölskyldunum. Nafni hótelsins var breytt eftir málið en það heitir í dag Lux Hotel.