Áströlsk móðir hefur slegið í gegn fyrir að lýsa börnunum sínum á mjög hreinskilin máta. Hún viðurkennir að þau geta stundum verið „algjörir fávitar.“
Laura Mazza er þriggja barna móðir og deilir raunum sínum á Instagram. Hún deildi á dögunum ótrúlega hreinskilinni færslu um börnin sín og viðurkenndi að hún nennir stundum ekki að elda kvöldmat né lesa bók fyrir börnin sín.
Laura segir að það þýðir ekki að hún sé slæm móðir. Hún segir einnig að foreldrar ættu að geta verið hreinskilnir um tilfinningar sínar án þess að óttast við að vera dæmdir af öðrum.
„Ég vil bara að þú vitir að ef þú ert vinur minn, þá geturðu sagt: „Börnin mín voru fávitar í dag“ og ég mun ekki dæma þig,“ skrifaði hún.
„Ég veit ég kvarta mikið undan foreldrahlutverkinu en það er vegna þess að það er það erfiðasta sem ég hef gert, bæði líkamlega og andlega. Á hverjum degi gerist eitthvað. Ég þurfti að stöðva slagsmál í dag, ég varð pirruð, ég hækkaði róm minn í dag, grét, huggaði, fékk samviskubit, var hamingjusöm, fann fyrir ást, gaf ást. Allt á einum sólarhring,“ segir hún.
„Þetta er erfitt. Þetta er erfitt fyrir okkur öll. Og við veltum því fyrir okkur af hverju við erum alltaf að klúðra málunum. Þannig af hverju ekki að vera bara hreinskilin? […] Veistu hvað er erfiðara en að ala upp börn? Að láta eins og það sé ekki erfitt.“
Færslan hefur heldur betur slegið í gegn meðal netverja og hafa einnig fjölmiðlar vestanhafs fjallað um færsluna, meðal annars News.au, Mirror og The Sun. Margir foreldrar tengja við skrif hennar og taka þeim fagnandi.
Þú getur lesið færsluna hennar í heild sinni hér að neðan.
View this post on Instagram