fbpx
Miðvikudagur 05.febrúar 2025
Fókus

Samvera með fjölskyldunni um jólin – Hugmyndir fyrir samverudagatal

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 22. nóvember 2020 12:20

Nú er tíminn til að njóta saman. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikil óvissa ríkir um desembermánuð vegna samkomutakmarkana og kórónuveirufaraldursins. Er ekki tilvalið að nýta tímann með fjölskyldunni til hins ýtrasta og njóta samverunnar í desember?

Samverudagatöl eru sniðug leið til að verja meiri tíma með börnunum og gera eitthvað skemmtilegt í leiðinni. Einnig góð leið til að tempra æsinginn sem byggist upp í börnunum með hverjum deginum sem líður nær jólum.

Við tókum saman nokkrar hugmyndir að samveru sem er hægt að eiga með fjölskyldunni á tímum COVID. Þetta þarf ekki að vera flókið eða kosta mikið, það þarf bara að vera samvera.

Skipulag

Það er hægt að hafa dagatalið rafrænt, en við mælum með að henda nokkrum límmiðum á blað og föndra dagatalið. Börn gera ekki himinháar kröfur um útlit svo þú getur ekki klikkað.

Það er sniðugt að skipuleggja þetta þannig að það sem er einfaldast og tekur skemmstan tíma sé á virkum dögum eða á dögum þar sem þú veist að mikið verður að gera, eins og að búa til snjókarl, fara í gönguferð eða lita jólamyndir.

Svo er hægt að sameina ýmislegt, eins og að fara í náttfataísbíltúr og horfa svo á jólamynd, eða skreyta saman og kveikja svo á kertum og lesa bók saman.

Þú getur búið til samverudagtalið og föndrað ýmislegt. Mynd/Pinterest

Dýrmætar fjölskyldustundir

Gistipartí

Hugmyndin er fengin frá móður í Facebook-hópnum Mæðra Tips. Hún og fjölskylda hennar gistu öll saman í stofunni eitt kvöldið. Það er tilvalið að blása upp vindsængur eða fara með dýnur, sængur og kodda fram í stofu, horfa á jólamynd og vera þar yfir nótt. Af öllu í samverudagatalinu þennan desembermánuð segir móðirin að gistipartíið hafi staðið upp úr hjá börnunum.

Leiksýning

Nú þegar ekki er hlaupið í leikhús eða á jólasýningar er tilvalið að halda sýningu heima. Það fer eftir aldri barnanna hvaða leikrit eða saga er valin.

Foreldri getur hjálpað til við að búa til búninga, æfa leikritið og þess háttar. Svo er hægt að halda sýninguna fyrir framan foreldra en einnig fyrir ömmur og afa, frænkur og frænda og vini í gegnum fjarfundabúnað.

Skemmtilegt að skreyta saman. Mynd/Getty

Skreyta piparkökuhús

Undanfarin ár hefur verið hægt að kaupa tilbúin piparkökuhús í IKEA, eina sem þú þarft að gera er að setja það saman. Svo er hægt að búa til eða kaupa tilbúinn glassúr, eitthvað nammi og skraut og öll fjölskyldan getur dúllað sér við þetta eina kvöldstund.

Njótið saman um jólin. Mynd/Getty

Fleiri hugmyndir fyrir samverudagatal

Kostar ekki neitt

  • Búa til snjókarl
  • Horfa á jólamynd
  • Skreyta jólatréð
  • Lita jólamyndir/perla jólamyndir
  • Fara í bíltúr og skoða jólaljós og skreytingar
  • Spila saman
  • Kveikja á kertum, fara öll undir teppi og lesa saman bók
  • Skreyta saman
  • Leika í snjónum
  • Gönguferð í myrkrinu með vasaljós
Mynd/Getty

Kostar lítið

  • Baka piparkökur
  • Fara í göngutúr og fá svo heitt kakó
  • Baka smákökur
  • Föndra jólaskraut
  • Velja hvað er í kvöldmatinn og hjálpa til við að elda

Kostar meira

  • Kaupa jólatré
  • Náttfataísbíltúr
  • Pítsupartí: Það er hægt að útfæra pítsupartí á nokkra vegu. Það er hægt að kaupa tilbúnar pítsur, en það er lítil samvera í því. Það er hægt að kaupa tilbúinn pítsubotn, búa til pítsubotn eða nota tortillakökur sem pítsubotn. Svo er sniðugt að setja rifinn ost, álegg og grænmeti á borð og allir geta sett á sínar pítsur sjálfir. Skemmtileg samvera þó hún verði aðeins sóðalegri svona.
Málaðu eins og Bob Ross.

Fyrir pör eða fjölskyldur með eldri börn

Málaðu eins og Bob Ross

Þessi samvera er örugglega sú dýrasta á listanum. Kaupa þarf striga og málningu, svo bara fara á YouTube og leita að „Bob Ross tutorial“ og þá finnurðu fjölda myndbanda þar sem listamaðurinn Bob Ross leiðbeinir þér í rólegheitum með silkimjúkri rödd sinni um hvernig þú málar flott málverk frá a til ö. Hann er meira að segja með nokkur myndbönd með jólaþema.

Tilvalið fyrir pör til að gera eina kvöldstund og opna rauðvínsflösku með. Líka skemmtilegt fyrir fjölskyldur með eldri börn.

Það er hægt að gera þetta að keppni, í lokin verður flottasta málverkið valið og verðlaun fyrir sigurvegarann. Þú þarft ekki að spreða og kaupa rándýran striga og málningu, þú getur til dæmis farið í Søstrene Grene, Verkfæralagerinn, föndurbúðir eða aðrar verslanir sem selja ódýrar málningarvörur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Varalesari afhjúpar hvað Kanye sagði við hana rétt áður en hún afklæddist – „Hún lítur út fyrir að vera skelfingu lostin“

Varalesari afhjúpar hvað Kanye sagði við hana rétt áður en hún afklæddist – „Hún lítur út fyrir að vera skelfingu lostin“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sunneva flettir ofan af slæmum sið Benedikts – „Vó“

Sunneva flettir ofan af slæmum sið Benedikts – „Vó“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fann fyrir frelsi eftir fund með árásarmanni sínum – „Litirnir sem voru gráir, þungir og ógeðslegir eru orðnir bjartir“

Fann fyrir frelsi eftir fund með árásarmanni sínum – „Litirnir sem voru gráir, þungir og ógeðslegir eru orðnir bjartir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hvað ef Ísland hefði aldrei verið til?

Hvað ef Ísland hefði aldrei verið til?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Ábreiða af einum stærsta smelli níunda áratugarins – Íslandsvinur vildi ekki gefa lagið út

Ábreiða af einum stærsta smelli níunda áratugarins – Íslandsvinur vildi ekki gefa lagið út
Fókus
Fyrir 5 dögum

Páll Óskar þríkjálkabrotnaði í slysi á heimili sínu en sér fram á bata – Endaði í aðgerð fyrir þremur árum vegna hjartagalla

Páll Óskar þríkjálkabrotnaði í slysi á heimili sínu en sér fram á bata – Endaði í aðgerð fyrir þremur árum vegna hjartagalla
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Eftir þetta hræðilega banaslys náfrænda míns og vinar var sjokkið það mikið að ég vissi að ég yrði að breyta lífi mínu“

„Eftir þetta hræðilega banaslys náfrænda míns og vinar var sjokkið það mikið að ég vissi að ég yrði að breyta lífi mínu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Byrjaði að missa hárið og læknirinn benti á ræktina – Varar fólk við að gera ekki þessi algengu mistök

Byrjaði að missa hárið og læknirinn benti á ræktina – Varar fólk við að gera ekki þessi algengu mistök