Áhugasamir geta haft samband í netfangið issexroom@gmail.com að því er segir í auglýsingunni. Ekki eru gefnar meiri upplýsingar um reksturinn eða herbergið. Margir hafa greinilega séð auglýsinguna á Brask og brall.is því nokkur hundruð manns hafa tjáð sig um hana og „lækað“ við hana.
DV hefur áður fjallað um kynlífsherbergið og skýrði þá meðal annars frá því að það sé í miðborginni og að fyrsti klukkutíminn í því kosti 15.000 krónur en síðan lækki verðið í 6.000 krónur á klukkustund. Í þeirri umfjöllun kom fram að fara þyrfti inn á heimasíðuna sexroom.is og greiða með greiðslukorti eða með Pei-greiðslukerfinu. Síðan er gefið upp símanúmer sem staðfestingarkóði er sendur í. Klukkustund fyrir bókaðan tíma fékk leigutakinn síðan sms með upplýsingum um staðsetningu herbergisins.
Blaðamaður DV heimsótti herbergið í sumar til að kanna málið og hér er hægt að lesa um upplifun hans í þeirri heimsókn.