fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Sakamál: Góðhjartaði morðinginn – Myrti ekkju og kom líki hennar fyrir í frystikistu

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 7. nóvember 2020 22:00

Bernie Tiede smiles after a court hearing granting his release at the Panola County court house in Carthage, Texas, Tuesday, May 6, 2014. The former mortician whose killing of a rich widow shook an East Texas town and later inspired a movie will soon go free, after the district attorney who prosecuted him agreed Tuesday to let him out of a life sentence. (AP Photo/LM Otero)

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Öldruð ekkja fannst látin ofan í frystikistu á heimili sínu í ágúst 1997 í smábænum Carthage í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Ekkert hafði spurst til Marjorie Nugent, 81 árs, svo mánuðum skipti og voru aðstandendur hennar orðnir áhyggjufullir. Það voru sonur hennar og barnabarn sem fundu líkamsleifar hennar og var ljóst að andlát hennar hafði borið að með saknæmum hætti.

Það reyndist auðvelt fyrir lögreglu að upplýsa glæpinn. Fyrsti maðurinn sem var yfirheyrður vegna málsins, Bernie Tiede, sem hafði verið náinn vinur Marjorie um árabil, játaði afdráttarlaust að hafa ráðið Marjorie bana níu mánuðum fyrr.

Málið virtist við fyrstu sýn nokkuð klippt og skorið. Morð hafði verið framið og morðinginn játaði verknaðinn á sig án nokkurra undanbragða. Hins vegar var málið einstakt á heimsmælikvarða vegna þess að Bernie Tiede er ótrúlega viðkunnanlegur maður og var þekktur fyrir að vera með hjartað á réttum stað. Íbúar í Carthage elskuðu hann og dáðu og vildu ómögulega horfa á eftir þessum yndislega manni í fangelsi.

Saksóknarinn í málinu hafði aldrei vitað annað eins og til að tryggja það að Bernie fengi þann dóm sem hann átti skilið þurfti að færa réttarhöldin í annað hérað þar sem enginn hafði heyrt minnst á Bernie Tiede, því annars hefði aldrei fengist kviðdómur sem væri tilbúinn að sakfella þennan viðkunnanlega mann, fyrir þann svívirðilega glæp sem hann hafði játað á sig.

Hvers manns hugljúfi

Árið 1985 flutti Bernhardt Tiede II, betur þekktur sem Bernie, í smábæinn Carthage. Þar var honum tekið opnum örmum. Bernie var búlduleitur maður og vinalegur. Nokkuð kvenlegur í fasi og þó hann væri ekki kominn út úr skápnum opinberlega, töldu margir ljóst að Bernie væri samkynhneigður. Bernie varð strax hvers manns hugljúfi í bænum. Hann var virkur í samfélaginu, kenndi í sunnudagaskólanum, sá um messur í fjarveru prestsins í bænum, var virkur í tónlistar- og leiklistarstarfi háskólans á svæðinu, söng í kórum og sönghópum og var í jólaskreytinganefnd bæjarins

Bernie starfaði sem útfararstjóri. Hann sagði gjarnan að tilgangur hans í lífinu væri að hjálpa öðrum og birtist það vel í störfum hans, þar sem hann lagði mikla áherslu á að styðja aðstandendur hinna látnu í gegnum ástvinamissi, einkum aldraðar ekkjur, sem höfðu sérstakt dálæti á honum.

Köld og fráhrindandi

Það var einmitt þannig sem hann kynntist Marjorie Nugent. Eiginmaður Nugent lést árið 1990 og sá Bernie um útförina. Marjorie var vellauðug en þótti köld og fráhrindandi og í engu uppáhaldi hjá þorpsbúum í Carthage.

Bernie tók Marjorie undir sinn verndarvæng eftir jarðarförina. Urðu þau nánir vinir. Marjorie dekraði við hann með gífurlegum fjármunum sínum og bauð honum nýtt starf sem viðskiptastjóra fyrir sig. Nýja starfið veitti honum ótakmarkaðan aðgang að auðæfum hennar og nýtti hann sér þá heimild óspart, jafnvel meira en Marjorie sjálf hefði kært sig um. Mörgum þótti undarlegt að þessi vinsæli og dáði maður hefði vingast við þessa fráhrindandi konu, en Bernie sagði þá gjarnan að hann væri sá eini sem Marjorie ætti að og hann gæti ekki skorast undan þeirri ábyrgð. Þau ferðuðust um heiminn saman, fóru á leiksýningar, á tónleika, í kirkju og töldu margir að þau væru elskendur

Skotin í bakið

Í nóvember 1996 skaut Bernie Marjorie fjórum sinnum í bakið og kom henni fyrir í frystikistu. Um níu mánaða skeið hélt Bernie lífi sínu áfram eins og ekkert hefði í skorist og kom með hinar ýmsu lygar um fjarveru Marjorie.

Eftir að Bernie játaði á sig verknaðinn vildi þó enginn í Carthage trúa því að Bernie væri vondur maður. Marjorie hafði verið óvinsæl og töldu menn því að Bernie hefði haft góða ástæðu til að gera það sem hann gerði. Honum ætti því ekki að refsa og hann ætti að fá að halda áfram að auðga samfélagið.

Saksóknari í málinu sá sér ekki annað fært en að fá réttarhöldin flutt frá Carthage, til að tryggja óvilhallan kviðdóm. Kviðdómur í málinu tók sér aðeins 20 mínútur til að sakfella Bernie og dæma hann til ævilangrar fangavistar. Fjölmargir stuðningsmenn Bernies voru viðstaddir réttarhöldin og grétu þegar Bernie hlaut dóm sinn. Sérstakur aðdáendaklúbbur Bernies var stofnaður í Carthage og þó í honum hafi fækkað nokkuð í dag er hann þó enn til

En hvers vegna myrti Bernie Marjorie? Sjálfur segir hann að Marjorie hafi kúgað sig og beitt sig harðræði. Hafi hann varla mátt fara úr augsýn hennar. Kvaðst hann ekki hafa séð sér aðra leið færa en að myrða hana til að sleppa undan valdi hennar. Líklega hefði Bernie komist upp með glæpinn hefði hann falið líkamsleifar Marjorie betur, en hann sagði eitt sinn í viðtali: „Ég gat ekki fengið það af mér að yfirgefa hana, ég var hennar eini vinur,“ og sagði enn fremur að hann hefði beðið færis eftir að veita henni almennilega útför.

Aðstandendur Marjorie voru á öðru máli. Þeir telja að Bernie hafi verið svikari sem hafi svikið stórfé út úr ekkjunni öldruðu. Hafi Marjorie komist á snoðir um svikin og því hafi Bernie myrt hana.

Deildi ágóðanum

Óumdeilt er að Bernie eyddi gífurlegu magni af auðæfum ekkjunnar. Hins vegar eyddi hann peningunum á óhefðbundinn máta. Hann styrkti ungmenni í samfélaginu til háskólanáms, keypti hús handa ungu pari í fjárhagserfiðleikum, gaf til góðgerðarmála, keypti bíla fyrir fólk í Carthage, keypti verslun sem var á leið í þrot og hjálpaði manni að opna fataverslun.

Og þetta eru aðeins fáein dæmi um hvernig Bernie nýtti fjármuni Marjorie í þágu annarra. Hann eyddi gífurlegum peningum í að auðga samfélagið og styðja við hina ýmsu menningar- og viðskiptastarfsemi.Bernie Tiede myrti 81 árs ekkju og kom henni fyrir í frystikistu. En enginn sem þekkti hann vildi sjá honum refsað fyrir brotið.

Kvikmynd um Bernie

Mál Bernies vakti athygli kvikmyndagerðarmannsins Richard Linklate. Richard fór og heimsótti Bernie í fangelsi og gerði um mál hans kolsvörtu gamanmyndina Bernie sem vakti mikla athygli. Meðal þeirra sem kvikmyndin vakti áhuga hjá var lögmaður einn, sem taldi að Bernie hefði ekki fengið sanngjarna málsmeðferð fyrir dómi. Bernie hefði nefnilega verið misnotaður sem barn. Því hefðu kúgunartilburðir Marjorie komið því til leiðar að Bernie fór í tímabundið geðrof og ekki verið vitandi vits þegar hann myrti Marjorie

Fallist var á endurupptöku málsins og var Bernie sleppt úr fangelsi á meðan málið var tekið fyrir að nýju. Hann flutti inn til Richards Linklate og fékk um frjálst höfuð að strjúka í tvö ár, áður en hann var að nýju dæmdur í ævilangt fangelsi árið 2016

Enn eru margir þeirra trúar að Bernie eigi ekkert erindi í fangelsi. Hann er fyrirmyndarfangi og nýtur enn mikilla vinsælda, aðstandendum Marjorie til mikillar mæðu, en þeir hafa ötullega barist fyrir því að endurheimta mannorð Marjorie, sem er í kvikmynd Linklate máluð sem hið versta skass og margir þeirrar trúar að hún hafi hlotið makleg málagjöld. Bernie á rétt á reynslulausn árið 2029, hann verður þá 71 árs gamall.

Leikarinn Jack Black lék Bernie í samnefndri kvikmynd og Shirley MacLaine lék ekkjuna Nugent.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar

Beverly Hills höll Bennifer formlega komin í sölu – Sjáðu myndirnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á

Eddie Vedder segist hafa verið hætt kominn – Pearl Jam hættu við tónleika í London sem margir Íslendingar ætluðu á
Fókus
Fyrir 5 dögum

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað

Leikarinn steinrunninn á meðan myndband af eftirmála voðaskotsins var spilað