Í myndandinu sem um ræðir er Laufey að syngja frábæra ábreiðu af laginu My Future eftir Billie Eilish. Þremur tímum eftir að Laufey birti myndbandið þá deildi Billie myndbandinu á Instagram-síðu sinni en rúmlega 66 milljón manns fylgja henni þar.
Myndband Laufeyjar hefur fengið afar góð viðbrögð en rúmlega 70 þúsund manns hafa líkað við það þegar þessi frétt er skrifuð. Laufey tjáði sig um deilinguna á myndbandinu á Instagram-síðu sinni. Þar sagði hún að þetta væri óraunverulegt.
Þá vakti tónlistarmaðurinn Auður vakti athygli á deilingunni á Twitter-síðu sinni í kvöld. „Er búinn að vinna aðeins með Laufeyju og hef aldrei kynnst öðru eins talenti,“ sagði Auður.
Hér fyrir neðan má sjá myndband Laufeyjar:
https://www.instagram.com/p/CEpFSi4HeHW/
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Laufey vekur athygli hjá einhverjum frægum í Bandaríkjunum. Bandaríski leikarinn Josh Radnor, sem er hvað þekktastur fyrir leika Ted Mosby í sjónvarpsþáttunum How I met your mother, fylgdi Laufey á Instagram í maí á þessu ári í kjölfar þess að hún gaf út smáskífu sem naut mikilla vinsælda á stuttum tíma.
„Þegar Josh Radnor „followaði“ mig fyrst þá fattaði ég ekki að þetta væri Ted Mosby. Ég kannaðist eitthvað við nafnið hans og skoðaði síðuna hans en áttaði mig samt ekki á að þetta væri hann þótt ég hafi horft á How I met your mother margoft. Það var ekki fyrr en einhver benti mér á að Ted Mosby væri að „followa“ mig að ég tengdi allt saman,“ sagði Laufey í samtali við Mbl.is fyrr á árinu. „Ég fæ svo alltaf í magann þegar tónlistarmenn sem ég hef dáðst að í gegnum tíðina fylgja mér og senda mér kveðjur.“