fbpx
Mánudagur 28.apríl 2025
Fókus

Edda Hermanns hélt þrusupartý

Jón Þór Stefánsson
Miðvikudaginn 3. júní 2020 09:32

Ragnhildur Steinunn sjónvarpskona, Haukur Ingi fyrrum fótboltakappi, Ingibjörg, Rikki Daða unnusti Eddu og tengdamamma hennar Ragnheiður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Edda Hermannsdóttir hélt þrusupartí í gærkvöldi á Kjarvalsstofu í tilefni þess að bók hennar, Framkoma, er komin í verslanir. Edda hefur gert garðinn frægan sem fjölmiðlakona um árabil áður en hún hóf störf hjá Íslandsbanka. Edda starfar í dag sem markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka en hún hefur starfað bæði hjá RÚV sem spyrill í Gettu betur og var aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins. Á undanförnum árum hefur hún haldið námskeið um framkomu ásamt systur sinni, Evu Laufeyju Kjaran Hermannsdóttur, fjölmiðlakonu, og þjálfað stjórnendur í framkomu.

Bók hennar Framkoma þykir hið mesta þarfaþing fyrir ungt fólk en þar er stiklað á stóru um hvernig standa að greinaskrifum, fréttaskrifum, ræðum og kynningum auk framkomu í sjónvarpi, útvarpi og hlaðvarpi, viðtölum og samfélagsmiðlum. Einnig er komið inn á hvernig skuli virkja tengslanet, slá í gegn í atvinnuviðtölum og stýra fundum.

Edda er vinsæl og vinamörg eins og sést á stjörnustóðinu sem mætti til að fagna með henni.

Björg Vigfúsdottir og Sigþrúður Ármann.
Gunnhildur Arna og Andri forstjori Ölgerðarinnar.
Andri forstjóri Ölgerðarinnar og Marín konan hans.
Hjónin Jón Þór og Sigrún Ósk sjónvarpsstjarna.
Útgefendurnir Anna Lea Friðriksdóttir og Dögg Hjaltalin ásamt höfundinum Eddu Hermannsdóttur.
Hildur Karen, Rakel, Birna Einarsdóttir forstjóri Íslandsbanka, Ellen og Þórunn.
Ragnhildur Steinunn, Haukur Ingi, Ingbjörg Ösp, Ríkharður Daðason og Ragnheiður Ríkharðsson.
Birkir Kristinnsson, Ragga Gísladóttir söngkona og Martína Nardini.
Katrín Petersen, Birna Eggertsdóttir, Brynhildur Magnúsdóttir, Emilía Jóhannsdóttir – móðir Eddu, og Ingibjörg Árnadóttir,
Kristín, Hrafnhildur og Ísgerður.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Vinsælt fjölskylduforrit kom upp um framhjáhald eiginkonunnar

Vinsælt fjölskylduforrit kom upp um framhjáhald eiginkonunnar
Fókus
Fyrir 2 dögum

Afhjúpar leyndarmálið á bak við 22 ára hjónaband – „Það er svona einfalt“

Afhjúpar leyndarmálið á bak við 22 ára hjónaband – „Það er svona einfalt“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bubbi kemur Unu Torfa og félögum til varnar eftir útreið hjá Símoni – „Ég trúði þeim öllum og ekkert stakk mig í augun“

Bubbi kemur Unu Torfa og félögum til varnar eftir útreið hjá Símoni – „Ég trúði þeim öllum og ekkert stakk mig í augun“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Evert: „Þar sem eru svona miklir peningar er stutt í einhvers konar spillingu“

Evert: „Þar sem eru svona miklir peningar er stutt í einhvers konar spillingu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Kallar eftir því að Jon Hamm verði slaufað vegna atviks árið 1990

Kallar eftir því að Jon Hamm verði slaufað vegna atviks árið 1990
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hafa áhyggjur af söngkonunni út af því sem hún hafði meðferðis í ferðalaginu – „Þetta er eitt það furðulegasta sem ég hef séð“

Hafa áhyggjur af söngkonunni út af því sem hún hafði meðferðis í ferðalaginu – „Þetta er eitt það furðulegasta sem ég hef séð“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Amy Schumer um kynlífsatriðið rosalega með John Cena – „Hann var í rauninni inni í mér“

Amy Schumer um kynlífsatriðið rosalega með John Cena – „Hann var í rauninni inni í mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sambandsráð sem öll pör ættu að heyra – „Ríða fyrst reglan“

Sambandsráð sem öll pör ættu að heyra – „Ríða fyrst reglan“