Hrafnhildur Rafnsdóttir heldur úti vinsælli YouTube-rás með yfir 150 þúsund fylgjendur. DV tók viðtal við Hrafnhildi í júlí þar sem hún fór yfir YouTube ferillinn.
Hrafnhildur notar nafnið Hrafna á YouTube og gerir myndbönd um Ísland og íslensku.
Sjá einnig: Þetta halda útlendingar um okkur: „Næstum hver einasti Íslendingur á hest“
Í nýjasta myndbandi sínu telur hún upp nokkur ráð fyrir fólk sem er eða er að spá í að koma til Íslands og ferðast um landið.
Hrafna byrjar á því að nefna íslenska vatnið og að það sé öruggt að drekka það.
„Plís ekki kaupa vatn í plastflösku,“ segir hún og bætir við að bæði sé það ekki umhverfisvænt, heldur líka frekar tilgangslaust þar sem þetta sé í raun plastflaska sem hefur verið fyllt með vatni úr krana.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.