Íslensk tónlist er í miklum blóma þessa daganna en í nótt og í morgun voru nokkrar smáskífur e. single gefnar út.
Hljómsveitin Sprite Zero Klan gaf í nótt út lagið Ó, Herjólfur sem er þjóðhátíðarlag sveitarinnar í ár. Lagið hefur vakið þónokkura athygli á netinu en því hefur verið dreift víða um samfélagsmiðla.
Ó, Herjólfur er ekki fyrsta þjóðhátíðarlag Sprite Zero Klan, en í fyrra gaf sveitin út lagið Lundinn í Dalnum sem vakti mikla lukku.
Chase Anthony gaf út lagið Áttavilltur með Inga Bauer og Ezekiel Carl. Lagið er einskonar ábreiða á Þú vilt ganga þinn veg, sem sungið var árið 1973 af Einari S. Ólafssyni, einnig þekktum sem Einar áttavillti.
Logi Pedro gaf svo út lagið Svarta ekkja en það er fyrsta lagið sem Logi gefur út á þessu ári.
DJ Muscleboy eða Egill Einarsson gaf þar að auki út lagið #Summerbody. Egill vonast líklega til þess að það verði sumarsmellurinn í ár.
Öll lögin er hægt að finna á Spotify.