Ed Sheeran og Travis Scott voru að gefa út nýtt lag, „Antisocial“, og tónlistarmyndband við lagið. Þetta er í fyrsta sinn að stjörnurnar sameina krafta sína en nýverið gaf Ed Sheeran út lagið „I Don‘t Care“ með Justin Bieber sem hefur notið gríðarlega vinsælda um allan heim. Ed Sheeran er væntanlegur til landsins í ágúst og mun halda tvenna tónleika í Laugardalnum, 20. og 21. ágúst.
Horfðu á tónlistarmyndbandið hér að neðan.