Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, og Alexandra Fanney Jóhannsdóttir flugfreyja eiga von á barni. Parið hefur verið saman í nokkurn tíma og skráðu sig í sambandi á Facebook í ágúst í fyrra.
Parið mætti í brúðkaup hjá vinum sínum í maí og birti Alexandra myndir af þeim á Instagram með orðunum: „Þessi þrjú skemmtu sér konunglega síðustu helgi ásamt dásamlegu fólki. Takk fyrir okkur.“
Alexandra á fyrir einn son og Hermann tvær dætur.
https://www.instagram.com/p/BxkLLetAeOd/