Tæp 10 ár eru síðan söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir steig á svið Eurovision í Moskvu þann 16. maí 2009 og tryggði Íslendingum 2. sætið. Jóhanna Guðrún var þá aðeins 18 ára og hefur síðan átt farsælan feril hér heima og notið mikilla vinsælda.
Annað sætið er besti árangur okkar í keppninni, en við höfum átt það sæti tvisvar: Jóhanna Guðrún árið 2009 og Selma Björnsdóttir árið 1999 með lagið All Out Of Luck. Því væri vel við hæfi að Hatari myndu tryggja okkur 2. sætið i ár, þó að við viljum að sjálfsögðu eins og næstum hvert ár frá því Ísland hóf fyrst þáttöku í Eurovision árið 1986.
Í tilefni 10 ára afmælisins fékk Fjarðarpósturinn Jóhönnu Guðrúnu í lið með sér og frábær hugmynd varð að veruleika, Jóhanna Guðrún klæddist Hatara-gallanum, komin 34 vikur á leið með sitt annað barn, en hún og eiginmaður hennar, Davíð Sigurgeirsson, eiga von á syni.
Hér fyrir neðan má sjá myndböndin þrjú og bíðum við spennt eftir að sjá Hatara stíga á svið í fyrri undankeppni Eurovision í kvöld.
Lesa má frekar um verkefnið og sjá fleiri myndir af Jóhönnu Guðrúnu og undirbúningnum á vef Fjarðarpóstsins.