Leikarinn Rainn Wilson er staddur hérlendis til að leika í sjónvarpsþáttunum Ráðherrann, samkvæmt frétt Fréttablaðsins. Sá leikari gerði garðinn frægan í bandarísku þáttunum The Office þar sem hann lék Dwight Schrute.
Á Twitter-síðu sinni deilir hann mynd af tökuliðinu og segir það ekta íslenskt.
Ráðherrann skrifa Björg Magnúsdóttir, Birkir Blær og Jónas Margeir og Ólafur Darri fer með aðalhlutverk. Þættirnir fjalla um forsætisráðherra með geðhvörf og hvernig aðstoðarmaður hans þarf að leggja allt í sölurnar til að halda geðhvörfunum leyndum fyrir þjóðinni.
Ekki mun vera vitað hvaða hlutverki Rainn kemur til með að gegna eða hversu stórt það verður. Hann mun þó eflaust gera því ágæt skil þar sem hann hefur í þrígang verið tilnefndur til Emmy-verðlaunanna.
When you’re shooting an Icelandic TV show in Iceland, the crew looks, well, downright Icelandic. #VikingCrew #TheMinister @OlafurDarri pic.twitter.com/hs7hXXQ5IJ
— RainnWilson (@rainnwilson) May 13, 2019