Hin sænska Greta Thunberg hefur heillað fólk um heim allan í baráttu sinni gegn loftslagsbreytingum. Hún er aðeins sextán ára en hefur velt af stað alheimshreyfingu, verið tilnefnd til friðarverðlauna Nóbels og átt fundi með ráðamönnum heims til að ræða þessi mikilvægu málefni.
Færri vita þó að móðir hennar, Malena Ernman, er Eurovision-stjarna, en hún var fulltrúi Svíþjóðar í keppninni með lagið La Voix í Moskvu árið 2009, sama ár og Jóhanna Guðrún lenti í öðru sæti með ballöðuna Is It True?
Malena er óperusöngkona að mennt og skein það í gegn í La Voix, þar sem frönsku og ensku var blandað saman. Evrópubúum fannst hins vegar lítið til lagsins koma og það endaði í 21. sæti með aðeins 33 stig. Sigurvegarinn það árið, Alexander Rybak frá Noregi, og lagið Fairytale fékk 354 stig, svona til samanburðar.
Fleiri og fleiri eru farnir að átta sig á tengingu Malenu og Gretu og trúa tístverjar varla sínum eigin augum og eyrum, eins og sést hér fyrir neðan: