Athafnakonan Ellý Ármannsdóttir er byrjuð að læra listina að húðflúra. Ellý ákvað að hefja ferilinn í flúri með því að húðflúra sig sjálf.
Ellý Ármanns flúraði sig sjálf:„Nei, sko“ – Sjáðu myndbandið
Og að sjálfsögðu lá beinast við að unnustinn Hlynur Sölvi Jakobsson yrði næsti strigi húðflúrlistarinnar, en Ellý birti mynd af þeim saman á Instagram. Þar má sjá Ellý einbeitta við að flúra Hlyn.
https://www.instagram.com/p/ButYxY6gOZT/
Flúrið sem varð fyrir valinu er 101 Reykjavík, þar sem Hlynur bæði býr þar og starfar, og þar kynntist hann einnig ástinni á síðasta ári, Ellý sjálfri. En Hlynur gerði sér lítið fyrir og bað Ellýjar þann 1. febrúar.