fbpx
Þriðjudagur 29.apríl 2025
Fókus

Nýtt á DV – Föstudagsþátturinn Fókus: Dóttir Reynis kölluð Snapparabarnið – „Fólk hraunar og hleypur svo í burtu“

Fókus
Föstudaginn 22. mars 2019 21:07

Gerður og Reynir. Mynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag hefur göngu sína nýr hlaðvarpsþáttur á DV sem heitir Föstudagsþátturinn Fókus. Um er að ræða vikulegan þátt í umsjón dægurmáladeildar DV verða ýmis málefni líðandi stundar tækluð. Undir hatt dægurmáladeildar DV falla undirsíðurnar Fókus, Bleikt og Matur og því er óhætt að lofa því að efnistök verða fjölbreytt í þættinum.

Fyrstu föstudagsþátturinn er í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur og Anítu Estívu Harðardóttur. Gestir þeirra eru samfélagsmiðlastjörnurnar Gerður Arinbjarnardóttir, oftast kennd við Blush, og Reynir Bergmann, eða Reynir Snappari. Umræðuefnið? Illt umtal á samfélagsmiðlum, gagnrýni og neikvæðar athugasemdir.

Hér má sjá Gerði og Reyni fyrir miðju ásamt þáttarstjórnendunum, þeim Guðrúnu og Anítu. Mynd: DV/Hanna

Það kennir ýmissa grasa í þættinum, en bæði eru Gerður og Reynir sammála um að óþægilegustu viðbrögðin séu þau sem snerta fjölskyldur þeirra beggja.

„Ég held að erfiðustu skilaboðin, ljótustu skilaboðin sem maður fær yfir höfuð, eru ekki þau sem endilega snerta mig sjálfa heldur fjölskyldu mína og vini. Þetta er minn leikur að vera með samfélagsmiðla, þetta á ekki að þurfa að bitna á fólkinu í kringum mig,“ segir Gerður og Reynir er sama sinnis. „Já, maður fær móral.“

Þá segir Reynir að fjölskyldan hafi oft beðið hann um að hætta á samfélagsmiðlum, sér í lagi þrettán ára dóttir hans sem er kölluð Snapparabarnið í skólanum. Bæði Reynir og Gerður hafa fengið mörg óþægileg og óviðeigandi skilaboð á sínum áhrifavaldaferli, en rosalegustu skilaboðin sem Reynir hefur fengið voru of gróf til að lesa upp.

Fylgið Gerði á Instagram með því að smella hér – Fylgið henni á Snapchat með því að smella hér.

Fylgið Reyni á Instagram með því að smella hér – Fylgið honum á Snapchat með því að smella hér.

Horfið á Föstudagsþáttinn Fókus í heild sinni hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta er aldurinn þar sem ólifnaðurinn fer að taka sinn toll

Þetta er aldurinn þar sem ólifnaðurinn fer að taka sinn toll
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjósundið hefur hjálpað Sif að vinna sig út úr pálmatrésslysinu hræðilega á Tenerife

Sjósundið hefur hjálpað Sif að vinna sig út úr pálmatrésslysinu hræðilega á Tenerife
Fókus
Fyrir 3 dögum

Karla Sofía Gascón: „Trans fólk mun aldrei hverfa, sama hversu mikið einhver reynir“

Karla Sofía Gascón: „Trans fólk mun aldrei hverfa, sama hversu mikið einhver reynir“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókaspjall: Svik og undirferli

Bókaspjall: Svik og undirferli
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bubbi kemur Unu Torfa og félögum til varnar eftir útreið hjá Símoni – „Ég trúði þeim öllum og ekkert stakk mig í augun“

Bubbi kemur Unu Torfa og félögum til varnar eftir útreið hjá Símoni – „Ég trúði þeim öllum og ekkert stakk mig í augun“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Evert: „Þar sem eru svona miklir peningar er stutt í einhvers konar spillingu“

Evert: „Þar sem eru svona miklir peningar er stutt í einhvers konar spillingu“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Stefán Einar og Sara Lind hafa ákveðið að skilja

Stefán Einar og Sara Lind hafa ákveðið að skilja
Fókus
Fyrir 5 dögum

Telur að Justin Bieber sé fastur í sértrúarsöfnuði

Telur að Justin Bieber sé fastur í sértrúarsöfnuði