Hjónin Ingileif Friðriksdóttir, fjölmiðlamaður, og María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanns Viðreisnar, eiga von á barni.
Fyrir eiga þær soninn Þorgeir sem María Rut eignaðist áður en hún kynntist Ingileif.
Ingileif gengur með barnið, en settur dagur er í ágúst.
Fjölskyldan er einnig nýlega búin að fá sér hund, þannig að bráðlega telur hún fimm.
Fókus óskar fjölskyldunni innilega til hamingju með bumbubúann.