Rapparinn Emmsjé Gauti og kærasta hans Jovana Schally eiga von á dreng í sumar.
Emmsjé Gauti segir frá gleðifréttunum á Instagram.
„Það verður fullur bíll og jafnara kynjahlutfall þegar þessi litli boy mætir í sumar,“ skrifar Emmsjé Gauti.
https://www.instagram.com/p/BtgcPwAgX2B/?utm_source=ig_embed
Parið á sitt hvora dótturina úr fyrri samböndum, Gauti á dótturina Stellu og Jovana á Apríl Leu. Þau Gauti og Jovana eru gömul skólasystkini og byrjuðu saman árið 2017 og hafa síðan deilt uppeldi stelpna sinna með fyrrverandi mökum sínum.