Eitt er víst, að ég er ekki að lifa drauma rútínuna mína þessa dagana. Án þess að vilja kenna einhverjum öðrum um að ég sjálf sé ekki að lifa eftir minni drauma rútínu, þá hefur mér gengið erfiðlega með það undanfarið samhliða barneignum. Svona er þetta bara þessa dagana og ég læt það ekki trufla mig of mikið.
Ég vil ekki detta í þann pytt að nota börnin mín sem afsökun eða kenna þeim um, en það er nú samt þannig að maður er ekki að fara vakna kl. 6.00 ef maður sefur lítið sem ekkert um nóttina. Margar næturnar eru þannig hjá okkur hjónum þar sem svefnrútínan er ekki komin hjá yngra barninu. Auðvitað kemur að því að svefninn verður betri um leið og börnin verða eldri. Þá er gott að vera búin að úthugsa manns drauma rútínu, til þess að grípa ekki í næstu afsökun eftir að börnin fara að‘ sofa á nóttinni. Vera tilbúin og reyna að breyta einhverju smá í átt að góðri rútínu til þess að festast ekki í slæmum venjum.
⁃ vakna úthvíld
⁃ Hreyfa mig í 30-45 mínútur
⁃ Sund í sirka 15 mínútur
⁃ Morgunmatur með fjölskyldunni
⁃ Lesa gott og gagnlegt efni í 30 mínútur
⁃ Hafa mig til fyrir vinnuna
⁃ Vinna í sirka 6-8 tíma
⁃ Fara í göngutúr eða gera eitthvað gaman/hlúa að heimilinu
⁃ Kvöldmatur með fjölskyldu og/eða vinum
⁃ Samverustund með fólki eða vinna að gæluverkefnum
⁃ Fara snemma að sofa og vera þakklátur fyrir daginn
Nú þegar þetta er niður skrifað er auðveldara að koma sér í þessa átt.
Einn daginn verður þetta líf mitt.