Spjallþátturinn Með Loga snýr aftur í Sjónvarpi Símans næstkomandi fimmtudag, en nýja serían telur átta þætti.
Fyrsta sería af Með Loga vakti talsverða lukku á síðasta ári, en í ár verða viðmælendur hans ekki af verri endanum. Leikkonan Edda Björgvinsdóttir ríður á vaðið, en meðal annarra gesta Loga verða Kári Stefánsson, Linda Pétursdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og forsetafrúin Eliza Reid.
Í stiklu fyrir nýju seríuna bregður Logi á leik og spyr af hverju rödd Sjónvarps Símans, fyrrnefndur Ólafur Darri, geti ekki bara talað um ágæti hans svo hann þurfi ekki að lesa upp kynningartexta fyrir þáttinn. Hressileg stikla, sem má sjá hér fyrir neðan: