Bergur Ebbi Benediktsson, tónlistarmaður, pistlahöfundur og skemmtikraftur, hefur aldeilis átt betri daga. Hann segir frá því á Twitter.
„Stanslaus gubbupest á heimilinu frá fimmtudegi til þriðjudags. Þrjú börn að gubba og ég að þrífa upp og líka gubba,“ segir hann.
nóvembersaga (þráður) – stanslaus gubbupest á heimilinu frá fimmtudegi til þriðjudags – þrjú börn að gubba og ég að þrífa upp og líka að gubba (emoji útskýring: fjórir gubbandi hausar🤮🤮🤮🤮)
— Bergur Ebbi (@BergurEbbi) November 27, 2019
„Þrifið upp jafnóðum. Þvottavélin í stanslausum snúning allan tímann, en það var svo mikið gubbað á baðherbergisgólfið að mér fannst hefðbundin hreinsiefni bara ekki duga lengur. [Ég] var því mættur í Krónuna (eftir svefnlausa nótt) við opnum kl. 9 í leit að sterkum hreinsiefnum. Stóð þar við hreinsiefnahilluna, grár í framan, lamaður af þreytu, í góðan hálftíma og las aftan á allskonar Ajax brúsa. Þetta lítur hrikalega illa út á öryggismyndavélum. Endaði samt á að kaupa eitthvað sustainable danskt svans-vottað drasl sem lyktar eins og gubb. Og hér með lýkur þessari nóvembersögu.“
Það kannast líklegast flestir foreldrar við þessa kunnuglegu sögu þegar gubbupestin bankar upp að dyrum. Við óskum Bergi og fjölskyldu hans góðum bata sem fyrst!