Lögin sem Elton samdi fyrir þessa geysivinsælu teiknimynd eru fyrir löngu orðin klassísk. Circle Of Life, I Just Can’t Wait To Be King, Be Prepared, Hakuna Matata og Can You Feel The Love Tonight eru lög sem flestir kannast við en Elton er á bakvið öll þessi lög.
Það kom því á óvart þegar Elton sagði í samtalið við GQ að hann sé vonsvikinn með endurgerðina á Lion King.
„Þessi mynd olli mér gífurlegum vonbrigðum því mér líður eins og tónlistin hafi klúðrast algjörlega. Tónlistin var svo stór og mikilvægur partur í upprunalegu myndinni en í þeirri nýju hefur tónlistin ekki sömu áhrif á mann. Töfrarnir hafa horfið og gleðin með.“
Söngkonan Beyoncé talaði fyrir Nölu í endurgerðinni en hún gaf út plötu meðfram myndinni. Á plötunni voru lög eins og Spirit og Never Too Late en bæði lögin voru í endurgerðinni en ekki í upprunalegu myndinni.
Elton gagnrýnir það líka að tónlistin úr endurgerðinni hafi ekki fengið jafn mikla spilun og tónlistin úr upprunalegu myndinni.
Ég vildi að mér hefði verið boðið að vinna meira með þeim. Sköpunarstarfið í kringum nýju myndina var allt öðru vísi en síðast. Mér fannst ég bara ekki vera velkominn og ég fékk ekki sömu virðingu og áður. Það gerði mig afar sorgmæddann.“