Miðasala á söngleikinn Matthildi hefst á morgun, föstudaginn 1. febrúar. Sýningin verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 15. mars. Mikil eftirvænting ríkir fyrir þessari stórsýningu sem slegið hefur í gegn bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Matthildur er nýr söngleikur sem byggir á hinni rómuðu skáldsögu Roalds Dahl. Handritshöfundur er leikskáldið Dennis Kelly og Tim Minchin er höfundur tónlistarinnar.
Sagan segir frá Matthildi sem er óvenjulega gáfuð, tilfinninganæm og bókelsk og líklega þess vegna með sérlega ríkt ímyndunarafl. Þetta er fræg saga um litla stúlku sem þróar með sér ofurkrafta í baráttunni við ranglæti heimsins.
Leikarar í sýningunni eru Arnar Dan Kristjánsson, Björgvin Franz Gíslason, Björn Stefánsson, Ebba Katrín Finnsdóttir, Rakel Björk Björnsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir og Þorleifur Einarsson. Þær Erna Tómasdóttir, Ísabel Dís Sheehan og Salka Ýr Ómarsdóttir skipta með hlutverki Matthildar. Einnig leikur hópur barna í sýningunni sem var valinn úr þeim rúmlega 1100 börnum sem mættu í áheyrnarprufur í fyrra.
Gísli Rúnar Jónsson sá um að íslenska söngleikinn, Lee Proud er danshöfundur, Ilmur Stefánsdóttir sér um leikmynd, María Th. Ólafsdóttir um búninga, Þórður Orri Pétursson um lýsingu, Ingi Bekk um myndband, Margrét Benediktsdóttir um leikgervi, Garðar Borgþórsson um hljóð og aðstoðarleikstjóri er Hlynur Páll Pálsson.