Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir á Landspítalanum, eða Lækna-Tómas, sem hann er alltaf nefndur gerir góðlátlegt grín að nektarlistinni í færslu sinni á Facebook.
„Þessi bíður eftir að vera færður ofan í kjallara – en ætti sennilega best heima fyrir framan þvagfæraskurðdeildina,“ skrifar Tómas og birtir með mynd af styttu af nöktum karlmanni.