fbpx
Laugardagur 05.apríl 2025
Fókus

Kodi Lee er sigurvegari America‘s Got Talent – Sjáðu viðbrögð hans þegar úrslitin voru tilkynnt

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 19. september 2019 08:47

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kodi Lee er blindur og einhverfur, hann er einnig sigurvegari fjórtándu þáttaraðar af America‘s Got Talent.

Hann sigraði hjörtu heimsbyggðarinnar í sinni fyrstu áheyrnaprufu og fékk gullhnappinn. Það var ekki þurrt auga í salnum þegar hann spilaði og söng.

Kodi hélt áfram að slá í gegn í undanúrslitum keppninnar. Hann spilaði lagið „Bridge Over Troubled Water“ og eftir flutning sinn sagði dómarinn Simon Cowell að Kodi væri ein ótrúlegasta mannvera sem hefði tekið þátt í keppninni frá upphafi.

Hann komst að sjálfsögðu í næstu umferð og gerði það sama og venjulega, sló í gegn með mögnuðum og tilfinningaríkum flutning.

Í gær var úrslitaþáttur America‘s Got Talent og Kodi Lee steig á svið ásamt söngkonunni Leonu Lewis. Þau sungu lagið „You Are The Reason“ og spilaði Kodi á píanóið. Sjáðu atriðið hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=fm2Rj8Lo21s

Sjáðu þegar Kodi var tilkynnt um sigurinn í myndbandinu hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur birti nýja sjálfsmynd sem er „dæmi um konu eins og hún kemur af kúnni“

Ragnhildur birti nýja sjálfsmynd sem er „dæmi um konu eins og hún kemur af kúnni“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gísli segist hafa beðið um að fara á staði handan jarðar – Lýsir því og þeim sem hann sá

Gísli segist hafa beðið um að fara á staði handan jarðar – Lýsir því og þeim sem hann sá
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur með skýr skilaboð – „Það tekur tíma að fella grímuna alveg en það er þess virði fyrir aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd, betri heilsu“

Ragnhildur með skýr skilaboð – „Það tekur tíma að fella grímuna alveg en það er þess virði fyrir aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd, betri heilsu“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Hvað er langt í sumarið? Ég er að spyrja í alvöru“

Vikan á Instagram – „Hvað er langt í sumarið? Ég er að spyrja í alvöru“