Talsverður launamunur er hjá tónlistarbræðrunum Friðriki Dór og Jóni Ragnari Jónssonum. Friðrik er með rúmlega sjö hundruð þúsund í mánaðarlaun á meðan Jón er aðeins með ríflega þrjú hundruð þúsund krónur. Báðir eru þeir samt iðnir við kolann í tónlistarsköpun, uppistandi, á tónleikum og í auglýsingum. Hvað útskýrir launamuninn er óvíst en ljóst er að Friðrik getur látið bróður sinn finna fyrir því í næsta fjölskylduboði.
Jón: 323.124 kr.
Friðrik: 711.844 kr.