Séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju, stóð á tímamótum á síðasta ári, en hún og eiginmaður hennar til átján ára, Heimir Haraldsson, skildu. Hildur Eir greindi opinberlega frá því á Facebook-síðu sinni, en þau Heimir eiga saman tvo drengi. Hildur og Heimir skildu í sátt og samlyndi, þótt Hildur Eir viðurkenndi fúslega að þetta væri erfitt ferli. „Auðvitað er þetta sorg, auðvitað er þetta skipbrot, auðvitað eru margir sorgmæddir í kringum okkur, auðvitað erum við bæði kvíðin fyrir framtíðinni, skárra væri það nú, búin að vera saman hálfa ævina en það dó enginn,“ skrifaði hún meðal annars.
Laun: 1.081.947 kr.
Allt um laun yfir tvö þúsund Íslendinga í Tekjublaði DV.