Kona á þrítugsaldri breytti bílskúr við heimili foreldra sinna í íbúð fyrir sig með góðri aðstoð foreldranna og eru 20 fermetrar nú orðnir að hlýlegu og fallegu heimili.
„Við leigðum gám og byrjuðum á að rífa allt út úr bílskúrnum og henda í gáminn. Það þurfti að þrífa allt hátt og lágt, byrja á því að teipa herbergi og mæla fyrir öllu,“ segir íbúðareigandinn, en verkið í heild tók þrjá mánuði.
„Það var rosalega mikið sem tók tíma af minni hálfu þar sem ég er mjög óþolinmóð,“ svarar hún aðspurð hvað hafi verið erfiðast við verkið. „Grunnvinnan og undirbúningurinn og öll þrifin voru tímafrek. Síðan verð ég að taka fram að það að sparsla og pússa og sparsla og pússa er klárlega leiðinlegasta og tímafrekasta verkefnið.“
Pípari kom og lagði fyrir sturtunni, en baðherbergið er innst í rýminu. „Við létum líka gera túðu í sturtunni sem er alltaf í gangi svo að loftflæðið sé í lagi.“ Einn gluggi er í heildarrýminu, við annan endann þar sem komið er inn, þannig að loftflæði þarf að vera gott svo ekki myndist mikill raki eða hiti inni.
Hvað var dýrast við framkvæmdirnar?
„Kostnaðarsamasti hlutinn var þegar við þurftum að leita aðstoðar hjá iðnaðarmönnum, en við eigum gott fólk að og var vinur pabba, sem er smiður, með okkur í öllu ferlinu og fær hann tíu í einkunn fyrir þolinmæði og fagleg vinnubrögð.“ Frændi hennar kom síðan og tengdi fyrir rafmagninu.
Íbúðareigandinn mælir með því við slíkar breytingar að vera vakandi fyrir tilboðum og afsláttum. „Við vorum helvíti heppin með mikið af hlutum, eldhúsinnréttingin var til dæmis á 40 prósent afslætti í IKEA því þeir voru að skipta út svarta litnum.“
Hvað kom á óvart í breytingunum?
„Hvað lofthæðin er góð, rýmið er í góðri „funksjón“ og hvað pabbi minn er helvíti duglegur.“
Hvað var skemmtilegast?
„Að sjá grámyglulegan bílskúr verða að fallegu litlu heimili, sjá hvernig hlutirnir koma heim og saman. En verkefnið sjálft var mjög skemmtilegt, ég verð að taka fram hvað ég á góða foreldra sem eiga stórt „high five“ og faðmlag skilið, fyrir að leyfa mér að njóta góðs af þeim á meðan ég safna fyrir íbúð. En auðvitað var þetta einn lærdómur sem fer klárlega í reynslubankann.“