Önnur umferð af áheyrnaprufum fyrir America’s Got Talent stendur nú yfir. Ansley Burns, 12 ára, átti frekar stressandi fyrstu áheyrnaprufu, en Simon Cowell, dómari í þáttunum, stöðvaði hana í miðju lagi. Hann sagði að undirspilið væri skelfilegt og bað hana um að syngja án undirspils. Hún gerði það og komst áfram í næstu umferð.
En sagan endurtók sig aftur. Simon Cowell stöðvaði Ansley í miðju lagi og sagði sömu söguna. Að undirspilið væri ekki að virka fyrir hana.
Sjáðu hvað gerðist í myndbandinu hér að neðan.
https://www.youtube.com/watch?v=8wmwE8Tz-nU