Lítil íbúð með sérinngangi er til sölu á 29,9 milljónir. Athygli vekur að íbúðinni svipar helst til skúrs og er aðeins 32,7 fermetrar að stærð. Verð á hvern fermetra er því rétt tæp 1 milljón, eða 914 þúsund krónur. Það hlýtur að teljast með því dýrara sem finnst í Reykjavík. Inn í fermetratölunni er geymsla sem er 3,2 fermetrar og því íbúðarrýmið í raun aðeins 29,5 fermetrar.
Ásett verð er þó í nokkru samræmi við fasteignamat eignarinnar sem er 29,6 milljónir á meðan brunabótamat er aðeins 9,66 milljónir. Í október í fyrra var meðalverð á fermetrann í miðborginni 538 þúsund krónur og því er hér um að ræða töluvert dýrari fermetra. Íbúðin var skráð til sölu í febrúar og því ljóst að áhugi almennings er ekki gríðarlegur.
Fyrir tveimur árum gerði DV úttekt á því hvar dýrustu fermetra Íslands mætti finna. Þá fann DV einungis níu eignir þar sem fermetrinn kostar yfir 800 þúsund krónur. Dýrasti fermetrinn þá var þriggja herbergja íbúð í Skuggahverfinu en þar kostaði fermetrinn svipað og fyrrnefnd íbúð, tæplega eina milljón króna.
Leikkonan og blaðakonan Ingunn Lára Kristjánsdóttir, gerði grín af auglýsingunni á Twitter fyrr á þessu ári.„Hér erum við með glæsibýli skýr, hvítur, líka blár lítur. Eldhúsinnrétting, alveg örugglega baðherbergi. 30 milljónir fyrir 30 fermetra, topp prís.“
Ég var að fá starf sem fasteignasali, gaman að deila með ykkur úrvalið á markaðnum í Reykjavík. pic.twitter.com/ZCAkFdng5t
— Ingunn Eitthvað (@IngaLalu) February 4, 2019
33 fermetrar pic.twitter.com/PZArAaKJBO
— e¯_(ツ)_/¯bet (@jtebasile) July 19, 2019
Áhugasamir geta haft samband við Fasteignasölu Reykjavíkur sem sjá um sölu eignarinnar.
Hér má sjá frekari upplýsingar um eignina og fleiri myndir