Einn þekktasti hjólreiðakappi sögunnar, Lance Armstrong, ver nú sumarfríi sínu á Íslandi, ásamt sambýliskonu sinni og stjörnukokkinum Önnu Hansen.
Bæði eru þau búin að birta myndir á Instagram og í stories á samfélagsmiðlinum. Parið er búið að faraí reiðhjólaferð um Reykjadal, skoða Hraunfossa í Borgarfirði og fara í jöklaferð.
https://www.instagram.com/p/Byx0KRFF70L/
Greinilegt er að Ísland og náttúrufegurð þess heillar parið. Tveimur börnum þeirra var skutlað í sumarbúðir í tvær vikur og því er spurning hvort að parið ætlar að vera tvær vikur á Íslandi.
„Ég get ekki beðið eftir að upplifa allt það sem Ísland hefur upp á að bjóða, ég hef aldrei heyrt eitthvað neikvætt um landið. Þar á að vera endalaust af náttúrufegurð,“ skrifaði Armstrong fyrir Íslandsferðina.
https://www.instagram.com/p/BytUoktnnRm/