fbpx
Laugardagur 29.mars 2025
Fókus

Fékk demantshring með dularfullum skilaboðum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 14. júní 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Út er komin skáldsagan Sara eftir Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur.

Innilega til hamingju með afmælið þitt. Ég hef hugsað til þín lengi og oft velt því fyrir mér hvort þú gerðir þér grein fyrir hversu mikil áhrif þú hafðir á líf mitt. Ég hefði ekki orðið að því sem ég er nema af því að ég hitti þig. Þín spor í lífi mínu eru djúp og varanleg. Þú ert stórkostleg kona sem gerir lífið betra og ljúfara með því að vera hér.

Þessi skilaboð fylgja glæsilegum demtantshring sem Sara Jónsdóttir, 45 ára ekkja og einstæð móðir, fær í afmælisgjöf. Hvergi kemur fram hver er svona rausnarlegur, en hana grunar að hann sé að finna í fortíð hennar. Hún ákveður að fara í ferðalag í gegnum líf sitt í leit að þessum manni, ferðalag þar sem hún þarf að takast á við ýmsa drauga sem hafa fylgt henni.

Grípandi, einlæg og spennandi saga um konu á krossgötum sem tekst að sigra sjálfa sig.

Sara er önnur skáldsaga Árelíu Eydísar Guðmundsdótur en fyrsta skáldsaga hennar, Tapað – fundið, hlaut sérlega góðar viðtökur gagnrýnenda og sat lengi á metsölulistum.

Sara er 252 blaðsíður að lengd. Eyjólfur Jónsson braut bókina um og Arndís Lilja Guðmundsdóttir hannaði kápu. Bókin er prentuð í Danmörku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Barnsmissir og fleiri persónulegar sögur á nýrri plötu Grétars Matt

Barnsmissir og fleiri persónulegar sögur á nýrri plötu Grétars Matt
Fókus
Fyrir 3 dögum

Visteyri kemur prótótýpum og prufum í hringrás á HönnunarMarkaði HönnunarMars

Visteyri kemur prótótýpum og prufum í hringrás á HönnunarMarkaði HönnunarMars
Fókus
Fyrir 4 dögum

Edda Björgvins grautfúl eftir óhapp í Hafnarfirði – Viðgerðin kostaði annan handlegginn

Edda Björgvins grautfúl eftir óhapp í Hafnarfirði – Viðgerðin kostaði annan handlegginn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nýir veiðiþættir hefja göngu sína á DV í samstarfi við Veiðar.is

Nýir veiðiþættir hefja göngu sína á DV í samstarfi við Veiðar.is
Fókus
Fyrir 5 dögum

Sýnir fyrir og eftir myndir eftir 32 kg þyngdartap og segist aldrei aftur ætla að taka að sér „feit hlutverk“

Sýnir fyrir og eftir myndir eftir 32 kg þyngdartap og segist aldrei aftur ætla að taka að sér „feit hlutverk“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Vikan á Instagram – „Þegar þú breytist í bimbó í eina nótt og vilt ekki að henni ljúki“

Vikan á Instagram – „Þegar þú breytist í bimbó í eina nótt og vilt ekki að henni ljúki“