Ísland er annað vinsælasta lagið á samfélagsmiðlum af lögunum sem tóku þátt í fyrri undankeppni Eurovision í gærkvöldi. Vinsælasta lagið er Zero Gravity frá Ástralíu.
Sjá einnig: Horfið á sigurframmistöðu Hatara aftur – Þakið ætlaði að rifna af höllinni
Minnst hefur verið á Ísland tæplega þrettán þúsund sinnum á samfélagsmiðlum þegar fréttin er skrifuð. Aðeins hefur verið oftar nefnt Portúgal og San Marino af löndunum sem kepptu í gærkvöldi.
Tölfræðina fyrir fyrri undankeppni Eurovision má sjá á communit360.com.