Ragnar Jónasson hefur verið viðriðinn glæpi frá unglingsaldri sem þýðandi spennusagna Agöthu Christie, og sem einn vinsælasti rithöfundur landsins, en bækur hans rata ítrekað á vinsældalista erlendis. Ragnar starfar sem lögfræðingur á fjárfestingarbankasviði Arion banka og er stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
DV tók Ragnar í yfirheyrslu.
Hjúskaparstaða og börn
Kvæntur og á tvær stúlkur, Kiru (9) og Natalíu (4).
Fyrsta atvinnan
Fréttamaður á Aðalstöðinni, þá fimmtán ára gamall, hjá Ólafi heitnum Þórðarsyni.
Skemmtilegast að gera?
Ég nýt þess mjög að lesa bækur og hlusta á góða tónlist, en skemmtilegast er að vera með fjölskyldunni.
En leiðinlegast?
Að gera bókhaldið.
Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum?
Efast um það. Vildi samt að ég gæti talað frönsku og spilað betur á píanó.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Að vera ég sjálfur, ráð frá mömmu.
Hvaða bók hefðir þú viljað skrifa?
The Murder of Roger Ackroyd eftir Agöthu Christie.
Leiðinlegasta bók sem þú hefur lesið?
Ég klára aldrei leiðinlegar bækur, ef mér líst ekki á þær, þá legg ég þær bara frá mér. Lífið er of stutt.
Fyrsti stjórnmálaflokkurinn sem þú kaust?
Sjálfstæðisflokkurinn.
Hver myndi skrifa ævisögu þína?
Þorvaldur Davíð, vinur minn, ég myndi treysta honum til þess.
Hefur þú fallið á prófi?
Man ekki til þess.
Hvað er það sem heillar mest við lögmennskuna?
Lögmennskan er fjölbreytt og getur opnað á ýmiss konar tækifæri.
Hvaða ráð ertu með fyrir rithöfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref?
Byrja að skrifa og skrifa helst eitthvað á hverjum degi.
Ertu trúaður eða trúir þú á æðri mátt?
Ég trúi að minnsta kosti á mátt orðsins.
Mannkostir þínir?
Ég sit aldrei auðum höndum.
En lestir?
Lestir eru bestir í bókum, án þeirra væru engar glæpasögur.
Best að vera lögfræðingur, rithöfundur eða kennari?
Rithöfundur, því ég er einmitt að klára nýja bók fyrir jólin þessa dagana.
Eitthvað að lokum?
Pössum upp á íslenskuna, hún er svo dýrmætt tungumál.