Búið er að taka saman myndband á YouTube með öllum bestu stundum Hatara. Um er að ræða myndbandsklippur af ýmsum tímabilum sveitarinnar, sem sýna þróun og sköpun sveitarinnar.
Eins og flestir ættu að vita syngur Hatari framlag Íslands í Eurovision, Hatrið mun sigra, í Tel Aviv í maí. Fyrrnefnt myndband var sett inn í gær og athugasemdir hrúgast fyrir neðan það – allar afar jákvæðar í garð Hatara.
Horfa má á myndbandið hér fyrir neðan: