Íslendingar hafa aðgang að gríðarlega miklu magni af bæði íslenskum og erlendum sjónvarpsþáttum sem þeir nota gjarnan til afþreyingar og þá sérstaklega yfir vetrartímann. Þegar kalt er í veðri er fátt jafn notalegt eins og að koma sér vel fyrir og kveikja á góðum sjónvarpsþætti. DV veltir því fyrir sér hvaða þættir séu vinsælir þessa dagana.
„Ég hef horft á tvo fyrstu þættina í Hvað höfum við gert og finnst þeir vel gerðir og gaman að sjá íslenska þætti um þessi mikilvægu málefni. Ég kláraði líka Afterlife með Ricky Gervais, fannst þeir fínir en ekki eins stórkostlegir og margir vilja meina. Mér finnst nýja Klovn-serían sem Rúv er að sýna miklu betri, virkilega vel skrifaðir og vel gerðir.“