Sautjánda sería American Idol er nú í sýningu og eru þrír þættir búnir þar sem áhorfendur fylgjast með vonglöðum upprennandi söngstjörnum sem dreymir um að verða næsti sigurvegari þáttanna.
Dómaranna þriggja, söngvaranna Katy Perry, Lionel Richie og Luke Bryan, bíður það vandasama verkefni að finna næstu stórstjörnu úr hópnum. En fyrsta verkefnið er að velja þá söngvara sem fá að fara áfram á næsta stig, til Hollywood.
Í tilviki prestsonarins Jeremiah Lloyd Harmon var engin spurning hver niðurstaðan yrði. Hann gjörsamlega heillaði dómaranna upp úr skónum með frumsömdu lagi sínu, Almost Heaven.