Ábyrgur einstaklingur sem sinni sínu fólki vel og hafi alltaf gert. „Hann er tveggja barna faðir og Jana unnusta hans á tvö börn sem hann sinnir eins og þau væru hans eigin. Þetta er ábyrgur maður sem sinnir sinni vinnu og þegar hann er að keyra fram eftir lætur hann alltaf vita ef honum seinkar. Við Jón erum í sambandi daglega vegna vinnu og traustari maður er vandfundinn.“
Þannig lýsir Davíð Karl Wiium bróður sínum, Jóni Þresti Jónssyni, sem leitað hefur verið að í Dublin á Írlandi síðan hann yfirgaf hótelherbergi sitt laugardaginn 9. Febrúar.
Til ađ sýna samhug í verki munu Pókerklúbburinn Casa, Spilafélagið, Pókerklúbburinn Magma, Maverick og Hugaríþróttafélag Íslands halda styrktarmót til að styðja við kostnað aðstandenda Jóns sem eru enn úti í Dublin að leita hans.
Mótiđ verđur haldiđ laugardaginn 9. mars í húsakynnum Hugaríþróttafélagsins ađ Síđumúla 37. Þátttökugjald er 1000 kr. en hægt verđur ađ kaupa sig ótakmarkađ inn í mótiđ og rennur allur ágóđi óskiptur í málstađinn.
Upplýsingar um nánara fyrirkomulag mótsins og vinninga má finna á Facebook-viðburði mótsins.