Katrín Atladóttir, tölvunarfræðingur og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, átti heldur betur eftirminnilega stund þegar hún rakst á frægan leikara sem gladdi hana á dögunum með sjarma sínum.
Katrín var stödd á veitingastað í Berlín í Þýskalandi þegar lítill heimur minnkaði enn meir. Þá kom hún auga á hinn Óskarstilnefnda Jonah Hill, sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í myndum eins og Superbad, The Wolf of Wall Street og 21 Jump Street ásamt framhaldi hennar.
Borgarfulltrúinn stóðst ekki mátið að smella af nokkrum ljósmyndum í laumi af kappanum, enda mikill aðdáandi leikarans, undir myllumerkinu „Boladagur“.
Hins vegar tók kvöldið ófyrirsjáanlega stefnu þegar hún mætti Hill á leiðinni út af veitingastaðnum og fékk vingjarnlegar viðtökur. Katrín greindi frá þessu á Twitter-síðu sinni í nokkrum bindum þar sem hún slær á létta strengi og segir:
„Ég og Jonah Hill fórum á klósettið á sama tíma og þegar hann yfirgaf veitingastaðinn sagði hann Byee, take care og vinkaði mér og brosti. Ég sagði bye you too og núna erum við besties.“
Jonah Hill var staddur í Þýskalandi vegna kvikmyndahátíðarinnar Berlinale en þar kynnti hann kvikmyndina sína, Mid90s, sem er jafnframt hans fyrsta kvikmynd í fullri lengd sem leikstjóri.
Ég og Jonah Hill fórum á klósettið á sama tíma áðan og þegar hann yfirgaf veitingastaðinn sagði hann byyyee take care og vinkaði mér og brosti og ég sagði bye you too og núna erum við besties ?
— Katrín Atladóttir (@katrinat) February 9, 2019
#boladagur pic.twitter.com/2fcMzujygk
— Katrín Atladóttir (@katrinat) February 9, 2019