Stórleikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson deildi skemmtilegri færslu með vinum sínum og aðdáendum á Facebook-síðu sinni. Hann hafði tekið á tannburstaflóði heimilisins með því að kaupa tvö glös undir verkfærin, eitt bleikt og annað blátt. Síðan setti hann tannbursta kvenfólksins á heimilinu í bleika glasið og bursta karlpeningsins í hið bláa. Tíu ára dóttur leikarans var ekki skemmt og benti föður sínum á að hann væri rasisti.