Í vikunni var tekið fyrir dómsmál Rögnu Lóu Stefánsdóttur gegn fyrrverandi eiginmanni sínum, Hermanni Hreiðarssyni. Parið skildi að skiptum árið 2016 eftir tuttugu ára samband. Þorra þess tíma bjuggu þau í Englandi þar sem Hermann spilaði sem atvinnumaður í knattspyrnu með fjölmörgum liðum. Ragna Lóa var lengi ein af okkar bestu knattspyrnukonum og spilaði fjölda landsleikja. Eru Ragna Lóa og Hermann bæði mikið afreksfólk í íþróttum.
Á meðan glíman í réttarsalnum gengur yfir þá er fyrrverandi heimili Rögnu Lóu og Hermanns enn á söluskrá. Um er að ræða glæsilegt 400 fermetra einbýlishús í Árbænum. Ásett verð er 129 milljónir króna. Eignin var fyrst auglýst til sölu síðasta sumar en markaður fyrir stórar dýrar eignir er þungur.
Vísir hefur fjallað ítarlega um þessa glæsilegu eign en þar er að finna glæsilegan glymskratta og barstóla í líki kóktappa.
Þá er stórt og mikið fataherbergi út af svefnherberginu auk partíherbergis þar sem er popp- og tyggjóvél, bar, risaskjár, þythokkíborð og margt fleira.
Níu herbergi eru í húsinu og sex svefnherbergi.
Hér má sjá heimsókn Sindra Sindrason í höllina og fyrir neðan má sjá myndir af þessu fallega húsi.
Í húsinu eru sérsmíðaðar innréttingar, sérinnflutt parket og flísar, vönduð blöndunartæki. Miele eldhústæki, innbyggð kaffivél ásamt vínkæli. Mjög stór afgirt suðurverönd með heitum potti.
Þá eru fimm til sex svefnherbergi, þrjú baðherbergi, möguleiki á aukaíbúð. Mjög stórt og fallegt samkomurými með sjónvörpum,myndvörpum, salerni og stórum bar.
Einnig er þar hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi og útgengi út á svalir.
Þá er fallegur garður, verönd og Bílaplan. Í garðinum er síðan heitur pottur.