Hefur þig alltaf dreymt um að vera samfélagsmiðlastjarna?
Áttu eftir að borða?
NOVA leitar að eldhressri og banhungraðri óuppgötvaðri samfélagsmiðlastjörnu til að bragða öll 2 fyrir 1 tilboð Nova.
Jebb, þú færð að borða að vild á öllum stöðum sem bjóða 2 fyrir 1 – og að sjálfsögðu getur þú boðið einhverjum með þér. Við fylgjumst svo með matarævintýrinu á samfélagsmiðlum Nova og finnum saman besta 2 fyrir 1 réttinn. Ef þú telur þig hafa bragðlaukana, magann og rétta hugarfarið sækir þú um starfið gegnum alfred.is fyrir sunnudaginn 10. febrúar.